11.1.09

Afmæliskort


Það greip um sig smá þörf fyrir að skapa eitthvað og úr varð þetta afmæliskort. Ég er þessa dagana í verknámi á Barnaspítala Hringsins og það er brjálað að gera í því og tilheyrandi verkefnavinnu auk þess sem maður er að taka niður jólin og koma heimilinu í stand eftir það. Þegar svona mikið er að gera hjá manni þá langar mann aldrei eins mikið til að sitja og föndra eitthvað  ;) 

Ég þarf nú sennilega að laga stóru stjörnuna eitthvað, ég fór að asnast til að handskrifa afmæli og er ekki sátt. Nenni því bara ekki núna. 

Þetta er Wiff of Joy stimpill...rosa sætur, litaður með Copics tússum. Pappírinn er Crate, man ekki hvaða týpa og stjörnurnar eru pönsaðar út með SU pönsum. Þarna eru líka tölur frá BG. 

6 comments:

Anonymous said...

Virkilega flott kort eins öll hér fyrir neðan, alveg meiriháttar !
Kveðja,Jóna

Anonymous said...

úúú very fancý!
kv. barbara.

Svana Valería said...

geggjað flott og stimpillinn svakalega sætur

Anonymous said...

ótrúlega flott kort!!

Anonymous said...

Æðisleg, rosaflott að gera svona saumaáferð og litirnir í stráknum og bakgrunnspp passa rosavel saman.

GuðrúnE

Bryndís said...
This comment has been removed by the author.