22.8.08

Tilda með kökukefli

Þennan stimpil fékk ég í vikunni ásamt nokkrum bræðrum hans. Ekkert smá fallegir. Ég hef ekki verið í gírnum lengi en vonandi fer þetta að koma hjá mér. 

Nú byrjar skólinn á mánudaginn. Ég get nú ekki sagt að ég sé spennt að byrja. En það er spennandi að hitta mínar mjög svo frábæru bekkjarsystur sem mér þykir svoooo vænt um. Það gerir þetta líka aðeins auðveldara að nú byrjar 4. og síðasta árið mitt :) Eftir ár verð ég bara orðin hjúkrunarfræðingur :) 

En, nú nenni ég bara ekki að lýsa þessu korti neitt sérstaklega ...held að allir þekki bara uppskriftirnar mínar af kortum ;) 

4 comments:

hulda beib said...

vááá bjútí bjútí!! litasamsetning og alles ;)

Svana Valería said...

þau renna bara út höndunum á þér þessi fallegu kort

Barbara Hafey. said...

ótrúlega fancý Bryndís!

Anonymous said...

Æðislegt og kakan litla krúttuleg með :-)

GuðrúnE